Viðskiptaskilmálar
Fyrirtækið
Markmið ORAN BOOKS ehf. gefur út skemmtilegar bækur sem hvetja börn til að tala um tilfinningar sínar. Ef viðskiptavinur óskar eftir að skila vöru er reynt að verða við því, sé þess nokkur kostur. Skilyrði er að varan sé í upprunalegu ástandi, ónotuð og miðinn ennþá á vörunni. Að þessum skilyrðum uppfylltum og gegn framvísun kaupnótu er viðskiptavini heimilt að fá inneignarnótu, skipta í aðra vöru eða fá endurgreiðslu séu 14 dagar eða minna liðnir frá kaupdegi.
Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. ORAN BOOKS ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá ORAN BOOKS ehf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Verð
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 11% vsk.
Sendingakostnaður
Innanlands sendum við vöruna að öllu jöfnu með pósti innan þriggja virkra daga. Sendingarkostnaður er reiknaður útfrá gjaldskrá Póstins með tilliti til áfangastaðar og fjölda vara, stærð þeirra og þyngd. Pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts/dropp um afhendingu vörunnar. ORAN BOOKS ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send úr vefverslun ORAN BOOKS og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila.
Ef pantað er fyrir meira en 9900 kr. fellur sendingarkostnaður niður (innanlands).
Að skipta og skila vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
Trúnaður (Öryggisskilmálar)
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur (ef fyrirtækið er með lögheimili í Reykjavík) eða Héraðsdómi Reykjaness (ef fyrirtækið er með lögheimili í t.d. Garðabæ eða Kópavogi)
Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.